Ekkert verður af því að komið verði upp húsnæði fyrir tímabundna búsetu við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarvatnsveg. Hugmyndin var að þar gæti farandverkafólk búið í öruggu húsnæði. Meirihlutinn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur ákveðið að falla frá þessum áformum. Það gerir hann meðal annars vegna þeirrar óánægju sem hefur komið fram meðal íbúa. Hátt í 300 mættu á íbúafund um fyrirhugaða uppbyggingu. Margir létu í ljós óánægju sína.Greint er frá örlögum verkefnisins á vef Hafnarfjarðarbæjar. Þar er haft eftir Orra Björnssyni, formanni bæjarráðs Hafnarfjarðar, að meirihlutinn hafi talið þetta áhugaverða hugmynd til að mæta raunverulegri þörf á húsnæðismarkaði. Að höfðu samráði við íbúa og eftir að hafa yfirfarið forsendur verkefnisins hafi meirihlutinn talið rétt að falla frá áformunum.