Áfram lítill hagvöxtur en minnkandi verðbólga

Áfram verður hægagangur í efnahagslífinu næstu misseri, samkvæmt hagspá Landsbankans. Þó eru líkur til að verðbólga fari fljótt að minnka og að stýrivextir verði lækkaðir snemma á næsta ári.Hagvöxtur verður 1,3 prósent í ár og 1,5 prósent á næsta ári, samkvæmt hagspánni sem var birt í morgun. Það lifnar aðeins yfir efnahagslífinu þegar líður á spátímann. Bankinn spáir 2,0 prósenta hagvexti 2028 og 2,8 prósentum 2029.Verðbólgan hefur lengi flækst fyrir landsmönnum. Landsbankinn spáir því að hún hafi náð hámarki í 5,9 og verði að meðaltali 5,5 prósent í ár. Hún minnki svo og verði 4,3 prósent að meðaltali á næsta ári. Þó er ekki útlit fyrir að hún fari niður í 2,5 prósenta verðbólgumarkmið bankans á spátímabilinu. Það nær til 2029. Atvinnuleysi verður um og yfir fjórum prósentum út spátímann
Áfram lítill hagvöxtur en minnkandi verðbólga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd