Fengu engar viðvaranir um árásir

Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, segir að engar viðvaranir hafi borist frá bandamönnum um yfirvofandi eldflauga- og drónaárásir Rússa í nótt. Hann segir þá hafa skotið 16 eldflaugum og yfir 200 drónum í nokkrum bylgjum.Zelensky og úkraínskir embættismenn hafa síðustu daga gagnrýnt bandarísk stjórnvöld og sagt að þau hafi dregið úr allri upplýsingagjöf um loftárásir. Bandarískir ráðamenn hafa vísað því á bug.Gögn úr eftirlitskerfum Bandaríkjahers og Starshield-kerfi Elons Musks hafa verið hluti af loftvarnakerfi Úkraínu. Það hefur gert þeim kleift að skjóta niður fjölda dróna og eldflauga.Zelensky sagði að árásir Rússa í nótt hefðu beinst að orkuinnviðum nærri höfuðborginni Kyiv.Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur beint spjótum sínum að Zelensky undanfarið og kennt honum um að ek
Fengu engar viðvaranir um árásir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd