Lækka laun bæjarfulltrúa og bæjarstjóra

Bæjarstjórn Seltjarnarness samþykkti fyrr í þessum mánuði að spara í rekstri bæjarins vegna slakrar afkomu á fyrri hluta árs. Meðal annars var samþykkt að lækka laun bæjarfulltrúa og bæjarstjóra. Einnig á að rýna rekstur og endurskoða opnunartíma einstakra stofnana, svo sem bókasafns og sundlaugar.Morgunblaðið greinir frá þessu í dag og ræðir við Þór Sigurgeirsson bæjarstjóra. Laun hans lækka um 200 þúsund krónur á mánuði. Hann var með 2,085 milljónir í mánaðarlaun samkvæmt yfirliti RÚV um laun bæjarstjóra. Haft er eftir Þór að verðbólga hafi valdið bænum vandræðum.Merki Seltjarnarnessbæjar.Fréttir
Lækka laun bæjarfulltrúa og bæjarstjóra

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd