Olíuflutningaskip brennur á Hormússundi

Olíuflutningaskip brennur á Hormússundi eftir að hafa siglt á tundurdufl og er eldur laus í vélarrúmi skipsins. Þetta hefur AFP eftir byltingarverðinum í Íran.Flutningaskip á Hormússundi.AP / UncreditedÍran viðheldur ströngum takmörkunum á umferð um Hormússund og hafa í því skyni komið tundurduflum fyrir í sundinu. Byltingarvörðurinn segir skipið sem nú brennur hafa slökkt á staðsetningarbúnaði sínum og siglt í trássi við siglingabann í suðurhluta Hormússunds.Tvö önnur skip brunnu eftir að hafa siglt á tundurdufl í vikunni með þeim afleiðingum að eldur kom upp um borð. Írönsk yfirvöld hafa tilkynnt að öll skip sem slökkva á staðsetningarbúnaði sínum verði flokkuð sem óvinaskip.
Olíuflutningaskip brennur á Hormússundi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd