Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti í gær formlega yfir stuðningi við Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels í aðdraganda þingkosninga í landinu.„Bibi Netanjahú hefur verið sterkur, hugrakkur og stórkostlegur gegn hinni miklu mótstöðu, þar á meðal innan Ísraels,“ sagði Trump í færslu á sínum eigin samfélagsmiðli, Truth Social.„Það er slíkur félagi sem Bandaríkin búast við af Ísrael, landi sem við höfum gert svo mikið fyrir.“ Þá lýsti Trump yfir fullkomnum stuðningi við Netanjahú í komandi kosningum. ÆTLA AÐ EYÐA „ÍRÖNSKU ÓGNINNI“ SAMAN Netanjahú þakkaði Bandaríkjaforseta fyrir stuðninginn og benti samlöndum sínum á að enn þá væri verk að vinna.Í nýlegu kynningarmyndbandi sem Likud, flokkur forsætisráðherrans, birti á samfélagsmiðlum segir Netanjahú að saman hafi hann og Trump rúst