Ræstitæknir læstist inni í klefa í þrjá sólahringa

Ræstitæknir læstist inni í klefa í byggingu landsréttar í Kaupmannahöfn og sat þar föst í þrjá sólarhringa áður en hún fannst. Danska ríkisútvarpið greinir frá.Frá Ráðhúsinu í Kaupmannahöfn, sem er þó ekki byggingin þar sem konan læstist inni.EPA / Sebastian Elias UthKonan var að þrífa í kjallara í gömlum byggingum Eystri-landsréttarins í Kaupmannahöfn á miðvikudegi í september þegar hurð að baki henni small í lás. Klefadyrnar var ekki hægt að opna innan frá og konan var ekki með síma á sér svo hún gat ekki kallað á hjálp.Maður konunnar hafði verið fjarverandi en kom heim á laugardegi og fór að leita að henni. Hann kom auga á hjól hennar fyrir utan bygginguna og kallaði til lögreglu. Konan fékk áfallahjálp og hefur snúið aftur til starfa.
Ræstitæknir læstist inni í klefa í þrjá sólahringa

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd