Fjórir hermenn létust og tugir annarra slösuðust alvarlega í eldsvoða í Wainwright-herstöðinni í Alberta í Kanada í gær. Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, segir atburðinn einn mesta harmleik sem kanadíski herinn hafi orðið fyrir á friðartímum í eigin landi.