Þurftu að fella gamla hlöðu vegna fokhættu

Gul viðvörun er í gildi um allt land og hafa björgunarsveitir á Ölfussvæðinu sinnt þó nokkrum útköllum vegna yfirvofandi þaktjóns. Sinna þurfti ýmsum verkum en björgunarsveitum bárust meðal annars tilkynningar um fjúkandi eða lausar þakplötur. Á Eyrarbakka þurfti að festa þakplötur á hesthúsi niður, sem og þakplötu á nýlegu íbúðarhúsi. Einn sem hringdi á neyðarlínuna lá sjálfur á þakplötu sem hafði losnað til þess að forða því að hún ylli tjóni. Á bænum Litla-Saurbæ var vörubíll með krana fenginn til þess að styðja við og fergja þak á gamalli hlöðu sem var við það að fjúka. Fljótlega kom í ljós að byggingin stæði ekki uppi mikið lengur og var þá tekin ákvörðun með ábúanda að fella húsið. Að loknum aðgerðum óku björgunarsveitir um byggðarlögin til eftirlits áður en þær héldu aftur í bækistö
Þurftu að fella gamla hlöðu vegna fokhættu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd