Ekki er sama eftirlit með börnum í bráðavistun og öðrum börnum í fósturkerfinu. Félag fósturforeldra segir dæmi um að börn séu í mörg ár í bráðavistun, þrátt fyrir að í barnaverndarlögum segi að bráðavistun megi vara í að hámarki þrjá mánuði.Börn í bráðavistun eru yfirleitt í vistun á heimilum sem hafa ekki leyfi Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála.Af þeim sökum er ekkert eftirlit og fósturforeldrarnir njóta ekki sama stuðnings og aðrir. BARNAVERND Á AÐ SINNA EFTIRLITI MEÐ BÖRNUM Í FÓSTRI Skýrsla Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála um fósturheimili kom út í sumar.Úttektin sem skýrslan byggir á var gerð eftir umfjöllun Kveiks um Bakkakotsmálið, þar sem kom í ljós að drengir sem dvöldu þar voru beittir ofbeldi af hálfu fósturforeldris.Meðal þess sem kemur fram í skýrslunni er