Samvinna björgunarsveitarmanna og sérsveitar lögreglu varð til þess að leit að manni sem féll í Stuðlagil í ágúst bar árangur. Maðurinn fannst á botni árinnar með aðstoð myndavélar. Björgunarsveitarmaður sem sérhæfir sig í straumvatnsbjörgun segir skipta máli að fólk finnist, hvort sem það er lífs eða liðið. SAMSTARF SKIPTI SKÖPUM Fjölmennt lið var kallað út þegar maður, sem var á ferðalagi hér frá Póllandi, féll í Stuðlagil í lok ágúst, þar á meðal straumvatnsbjörgunarsveitarmenn. Magnús Stefán Sigurðsson, straumvatnsbjörgunarsveitarmaður, segir að samstarf björgunarsveitarmanna og sérsveitar lögreglu hafi skipt sköpum við leitina.„Lögreglan kemur þarna með myndavél og fær okkur til þess að aðstoða sig við að nota hana og það skilaði þessum árangri, að viðkomandi finnst,“ segir Magnús