Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar í vikunni en hyggst sitja áfram á þingi sem þingmaður utan þingflokks.Hann sagði ástæðu úrsagnarinnar bæði pólitíska og skipulagslega. Innan þingflokks Viðreisnar væri viðvarandi forystuleysi, ákvarðanafælni og klíkumyndun. Þá vísaði hann til ágreinings um forgangsröðun og sagðist hafa viljað frekari áherslu á málefni barna í flóknum vanda.Jón segist hafa átt samtöl við flokksmenn Viðreisnar. Aðspurður hvort hann teldi að einhverjir væru að íhuga sína stöðu segist hann ekki vita til þess, en að það kæmi honum ekki á óvart.„Nú er ég genginn úr þessum þingflokki og ég ætla ekki að æra óstöðugan meira en orðið er,“ segir Jón.„En það kæmi mér ekki á óvart ef svo væri,“ segir hann. „En ég er ekki alveg upplýstur um það á þessari stundu.“Hann hafi ekk