Emmanuel Macron forseti Frakklands boðaði aðgerðir til að bregðast við óánægju mótmælenda í sjónvarpsávarpi sem hann hélt í kvöld. Hann gagnrýndi hins vegar skemmdarvarga harðlega og sagði nauðsynlegt að þeir svöruðu til saka.Macron byrjaði ávarpið á því að fordæma skemmdarverkin, sem hann sagði að engin réttlæting væri fyrir. Þau hefðu verið framin af vinstri öfgamönnum. „Þegar við sáum þessar myndir spurðum við okkur öll: Hvað er í gangi í hausnum á þeim? Hvernig geta Frakkar gert Frakklandi þetta?“ Hann hét gagnsærri rannsókn á viðbrögðum sérsveitar lögreglu við mótmælunum um helgina.Macron sagði þó að mótmælendur sem lýst höfðu óánægju sinni hefðu sitthvað til síns máls. Meðal annars myndi hann ræða við leiðtoga Miðausturlanda um verð á olíu en nú þyrftu allir stjórnmálaflokkar að ford