Maðurinn sem lést í slysi á Gæsavatnaleið á föstudagskvöldið hét Arnþór Örlygsson, fæddur 16. júní 1979. Hann lætur eftir sig eiginkonu, fjögur börn, stjúpson og barnabörn.Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra.Slysið er til rannsóknar hjá rannsóknardeild Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra og hefur rannsóknarnefnd samgönguslysa verið upplýst um slysið.