Óeinkennisklæddir lögreglumenn með grímur tóku 13 ára stúlku höndum

Stúlkan var ein heima þegar bankað var harkalega á rúðu á neðri hæð hússins. Þegar hún opnaði dyrnar blöstu við þrír óeinkennisklæddir menn með grímur fyrir vitunum. Stúlkan varð að vonum hrædd og hljóp inn í húsið. Einn mannanna hljóp á eftir henni, greip í hendur hennar þar sem hún reyndi að hlaupa upp stigann og hélt þeim fyrir aftan bak. Stúlkan grét og öskraði á móður sína þar til lögreglukona kom að og sagði henni að þau væru á vegum lögreglunnar. Hún var í haldi lögreglunnar í um fimmtán mínútur.Lögregluaðgerðin snerist um rannsókn á fíkniefnainnflutningi, en brotamaðurinn var leigjandi í húsinu og tengdist stúlkunni því ekki. Eftir því sem lögreglan segir þá vissu þeir ekki að í húsinu væri önnur íbúð sem er leigð út. HÉLDU RANGLEGA FRAM AÐ STÚLKAN HEFÐI HRINGT Í MÓÐUR SÍNA Móði
Óeinkennisklæddir lögreglumenn með grímur tóku 13 ára stúlku höndum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd