Samþykki ekki sama og leyfi fyrir alls kyns ofbeldi

„Samþykki gefur ekkert ótakmarkað leyfi til þess að gera hvað sem er og þurrkar ekki út mannréttindi fólks.“Þetta segir Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar – Samtaka gegn kynbundnu ofbeldi.Landsréttur sýknaði karlmann á fertugsaldri á dögunum af ákæru um nauðgun. Maðurinn hafði verið sakfelldur og dæmdur í fimm ára fangelsi í héraðsdómi. Landsréttur klofnaði og tveir dómarar sýknuðu manninn. Þriðji dómarinn skilaði sératkvæði og taldi rétt að staðfesta dóm héraðsdóms.Samkvæmt ákæru hlaut konan meðal annars rifbeinsbrot, heyrnartap og tognun í hálsi, öxl, mjóbaki og mjaðmagrind. Meirihluti Landsréttar taldi ósannað að maðurinn hefði brotið á konunni þar sem hún hefði samþykkt að beita mætti hana hörku í kynlífi. Hún hefði einu sinni notað öryggisorð og maðurinn brugðist við því
Samþykki ekki sama og leyfi fyrir alls kyns ofbeldi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd