Ef allt fer samkvæmt áætlun verður leiðangur Japönsku geimvísindastofnunarinnar JAXA sá fyrsti sem farinn verður fram og til baka en ferðir til Mars hafa hingað til einungis verið í aðra áttina.Markmið leiðangursins er að safna sýnum sem gætu varpað ljósi á uppruna sólkerfisins.Könnunarfarinu verður skotið frá Tanegashima-geimvísindastöðinni á þriðjudag klukkan 04:41 að staðartíma, eða 19:41 að íslenskum tíma. Könnunarfarið nálgast Mars ári seinna þar sem það mun vera á sporbaug um tunglið Phobos í allt að þrjú ár áður en það lendir á yfirborði þess. KRÍLRÍKUR KRAFSAR Í TUNGLIÐ Þar mun könnunarjeppinn IDEFIX framkvæma yfirborðsrannsóknir og safna sýnum, en Idéfix er franska nafnið á Krílríki, hundi Steinríks alvaska í Ástríksbókunum.Vísindamenn JAXA segja enn fremur að leiðangurinn verð