16 kínversk skip rekin frá Taívan

16 kínversk skip sáust í sameiginlegum aðgerðum undan ströndum Taívan í morgun. Strandgæslan þar segir þetta óvenju mikið og skipin hafi verið hrakin á brott.Kínversku skipin komu víða að. Sum voru frá strandgæslunni, önnur voru rannsóknarskip og svo voru þar líka venjulega fiskiskip. Strandgæslan í Taívan segir skipin hafa stundað samhæfðar aðgerðir við aðaleyju landsins og Pratas, eyju í suðvesturhluta landsins, sem meðal annars hafi falið í sér fjölþátta árásir. Hluti skipanna var í efnahagslögsögu Taívan. Strandgæslan hafi gripið til harðra aðgerða til að afstýra hættu af völdum þeirra.Kínversk stjórnvöld telja Taívan hluta af sínu landi og hafa reglulega hótað að hernema eyríkið. Þau hafa aukið umsvif sín í hafinu í kringum landið og fjölgað skipum sem eru þar með nánast fasta viðveru
16 kínversk skip rekin frá Taívan

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd