Ótal fréttir hafa verið sagðar af mataræði, vísað í skýrslur og rannsóknir og ólíklegt að málið sé tæmt, ef það gerist þá nokkurn tíma.RÚV hefur staðið fyrir ýmsu fræðsluefni í gegnum tíðina og fræðsla um mataræði er þar engin undantekning. Í nóvember 1989 var á dagskrá þátturinn Fræðsluvarpið – Þitt er valið, í umsjón Bjarna Árnasonar. Þar var fjallað um lífshætti unglinga, íþróttir og tómstundir.Í þættinum eru bornir saman hollir og óhollari kostir og sýnt hvernig samsetning máltíðar getur breytt bæði orkugildi hennar og næringargildi. Dæmið sem er tekið verður þó að segjast að sé heldur óvenjulegt:Hvort vilt þú frekar franskar og gos með hamborgaranum þínum eða mjólkurglas og appelsínu? Fjallað var um þetta og meira í Fræðsluvarpinu – Þitt er valið sem var á dagskrá sjónvarpsins 1989.Þá