„Þessi umræða kemur nú oft upp, á hverju hausti, þar sem fuglarnir sækja í kornin, bæði álftir og gæsir. Þetta hefur náttúrlega verið sérstaklega erfitt haust upp á þetta, verið votviðrasamt og vindur mikill og bændur kannski ekki náð að koma korni í hús.“Þetta segir Ólafur Einarsson, fuglafræðingur, framhaldsskólakennari og sérfræðingur í álftum, inntur eftir viðbrögðum við ákalli kornbónda á Suðurlandi. Sá vill að veittar verði undanþágur til að skjóta svani sem sækja í kornakra. Fuglinn er friðaður.Kornbóndinn segir fjárhagslegt tjón vegna ágangs álfta á ökrum sínum geta numið tugum milljóna. Fuglarnir éti allt að 10-60 hektara af korni hans. BETRA AÐ LEITA ANNARRA LEIÐA Fuglafræðingurinn telur æskilegra að horfa til annarra leiða til að verja kornakrana en að skjóta friðaðan fuglinn