Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, tók þátt í mótmælum í borginni Angers í vesturhluta Frakklands í gær. Mótmæli hafa farið fram víðs vegar um landið síðustu daga og segir innanríkisráðherra Frakklands að alls hafi um 1.800 verið handteknir í gær.Rósa Björk segir mikla spennu hafa verið í loftinu í Angers í gær.„Þar voru mótmæli eins og víða um allt Frakkland. Yfirvöld telja að um 550 þúsund manns hafi mótmælt en skipuleggjendur mótmælanna telja að um 800 þúsund manns hafi farið út á götur um allt Frakkland,“ segir hún.Rósa Björk Brynjólfsdóttir formaður Vinstri grænna segir mikla spennu hafa verið í borginni Angers þegar hún tók þátt í mótmælum þar í gær. Brotist hafi verið inn í hluta ráðhúss borgarinnar og beitti lögregla táragasi. LÖGREGLA BEITTI HÓPINN TÁRAGASI Mó