Dýrasti iPhone-síminn uppseldur á örfáum klukkustundum

Nýr samlokusími tæknirisans Apple seldist upp á örfáum klukkustundum eftir að opnað var fyrir forsölu. Áætlað er að sumar pantanir verði ekki komnar til viðskiptavina fyrr en eftir áramót, samkvæmt umfjöllun fjölmiðla vestanhafs.Apple kveðst enn ætla að taka við pöntunum.iPhone Duo hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu og er dýrasti snjallsími Apple hingað til. Verðið er frá 1.999 Bandaríkjadölum til 3.199 dala eftir því hvaða útgáfa er keypt – jafnvirði um 240 til tæplega 390 þúsund króna.Apple hefur, líkt og önnur tæknifyrirtæki, verið í vandræðum með að halda í við eftirspurn vegna skorts á íhlutum, þá einkum minniskubbum. Því hefur fyrirtækið hækkað verð á vörum sínum að undanförnu.
Dýrasti iPhone-síminn uppseldur á örfáum klukkustundum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd