Innanríkisráðherra Frakklands segir að skemmdarverk í mótmælunum þar í gær séu til rannsóknar og að skemmdarvörgunum verði refsað. Ein af byggingunum sem skemmdist var rúmlega 140 ára gömul. Um 1.800 voru handteknir í gær, þar af tæplega helmingurinn í París.Afleiðingar mótmælanna sem haldin voru víðs vegar um Frakkland í gær eru smátt og smátt að koma í ljós. Mótmælin fóru víða úr böndunum og lögreglan beitti táragasi á fjölda manns. Skemmdarverk voru framin á byggingum, bílum og fleiru. Embættismenn segja hitann í þessum mótmælum hafa verið með ólíkindum.Laurent Nunez innanríkisráðherra Frakklands segir að 1.800 manns hafi verið handteknir í gær. Rannsókn standi yfir á skemmdarverkunum svo hægt sé að rétta yfir gerendunum. Þá hafi um 500 lögreglumenn, slökkviliðsmenn og sjúkraflutningame