Nokkrir látnir og særðir í bruna í kanadískri herstöð

Yfirvöld í Kanada lýsa alvarlegu atviki sem leiddi til stórbruna í herstöð í Alberta sem stórslysi. Stjórnvöld hafa staðfest að nokkrir séu látnir og særðir en ekki hve margir.Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, segir brunann alvarlegan og stjórnvöld í Alberta sagði hann hafa haft áhrif á marga starfsmenn kanadíska hersins.Slökkvilið náði tökum á útbreiðslu eldsins í morgun, að því er CBC greinir frá.Kanadískir miðlar greina frá því að margir hafi verið fluttir á sjúkrahús. Læknir sagði CBC að álag á sjúkrahúsinu sé mikið vegna þess hve margir hafi leitað þangað.
Nokkrir látnir og særðir í bruna í kanadískri herstöð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd