Maðurinn sem lést í slysi sem varð á Gæsavatnaleið á föstudagskvöld var íslenskur og búsettur á Norðurlandi. Hann var á ferð með hópi Íslendinga sem voru á eigin vegum á leið í Gæsavatnaskála þegar einn af bílunum festist í krapa skammt frá skálanum. Slysið varð þegar verið var að reyna að losa bílinn.Í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra segir að slysið hafi strax í upphafi verið metið sem alvarlegt og að viðbragðsaðilar hafi verið sendir út á hæsta forgangi. Maðurinn var úrskurðaður látinn á vettvangi. Björgunarsveitir fluttu samferðafólk hans til Akureyrar þar sem áfallateymi Rauða krossins veitti því áfallahjálp.Slysið er til rannsóknar hjá rannsóknardeild Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, sem veitir ekki frekari upplýsingar að svo stöddu.