Hildur Björnsdóttir borgarstjóri vill að borgarfulltrúum verði fækkað úr 23 í 15. Þetta segir hún í aðsendri grein í Morgunblaðinu. Þar segir hún að með þessu gæti borgin sparað að minnsta kosti 125 milljónir króna á ári eða um hálfan milljarð á kjörtímabili og að umboð borgarfulltrúa frá kjósendum myndi styrkjast.„Allir eru þessir borgarfulltrúar á fullum launum hjá skattgreiðendum, auk sjö varaborgarfulltrúa. Fyrirkomulagið er óhefðbundið, bæði í samanburði við önnur sveitarfélög hérlendis og sambærilegar borgir erlendis – þar sem sveitarstjórnarmenn eða borgarfulltrúar sinna verkefninu einungis í hlutastarfi samhliða öðrum störfum,“ segir Hildur í greininni. VIÐBÓTARFULLTRÚAR EKKI SKILAÐ BETRI ÞJÓNUSTU Henni þyki eðlilegt að borgarfulltrúar líti sér nær þegar leitað er leiða til að d