Í útjaðri Þingholtanna í Reykjavík gætir fréttnæmrar frjósemi. Í garði leikskólans Laufásborgar, hefur stærðarinnar tré, hrossakastanía, myndað aldin í fyrsta skipti: þyrnótta kúlu með stórri „hnetu“ innan í. Mun þetta í fyrsta skipti sem Hrossakastanía myndar aldin á Íslandi svo vitað sé.„Ég hef séð blóm en ég hef aldrei séð aldin áður,“ segir Steinar Björgvinsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Hafnarfjarðar í nýjasta þætti Gulls og grænna skóga.„Þetta er suðlægt tré ættað frá Balkanskaga, en er engu að síður mikið ræktað um alla Evrópu og eitthvað í Norður-Ameríku,” segir Steinar.„Það er áberandi í almenningsgörðum en þykir yfirleitt of stórvaxið í heimilisgarða erlendis.“Steinar segir fleiri tegundir af hrossakastaníuættkvíslinni tóra eða skrimta hér á landi.„En þær allar virðast ve