Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fór í sjö útköll í gær og í nótt, þar af að minnsta kosti þrjú vegna roktjóns. Þá var slökkvilið kallað út vegna vatnsleka úr vatnsúðarakerfi í verslunarhúsnæði í Mjóddinni.Útköll á sjúkrabíla voru 89, 46 á dagvaktinni og 43 á næturvaktinni. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins greinir frá þessu í tilkynningu.„Það kom þarna á tímabili á milli hálf fjögur til að verða hálf sjö þar sem komu nokkur mál vegna roktjóns,“ segir Guðjón Ingason varðstjóri og á við síðdegis í gær.„Þetta var aðallega svona þakjárn að losna. Svo var einn gervihnattadiskur sem var laus. Við þurftum að losa hann og taka niður og losa þessi járn sem voru laus.“Þið eruð stundum að berjast við vindana. Eruð þið með sérstakt verklag í kringum það?„Við erum með sérstakar óveðurskistur með okkur se