Lögregla rannsakaði þrettán mansalsmál í fyrra en fékk ábendingar um og kannaði 76 til viðbótar. 44 mansalsmál komu á borð Bjarkarhlíðar. Breskur sérfræðingur í málaflokknum segir aldrei hafa verið mikilvægara að ná til þolenda, til að koma í veg fyrir að Ísland verði eftirsóknarvert fyrir hópa sem stunda mansal.„Við verðum að bera kennsl á fólkið meðal okkar í þjóðfélaginu sem hefur orðið fyrir þessum viðurstyggilega glæp, mansali. Til að gera það þurfum við vinnuafl sem heild og almenning sem skilur að fólk með áföll vegna mansals þarf mjög mild og vel ígrunduð viðbrögð,“ segir Rachel Witkin, sem hefur starfað með þolendum mansals í um aldarfjórðung.Lögregla rannsakaði þrettán mansalmál í fyrra. Breskur sérfræðingur segir mikilvægt að bregðast við svo Ísland verði ekki eftirsóknarvert fy