Viðvaranir vegna hvassviðris um landið allt

Spáð er vaxandi sunnan- og suðvestanátt í dag með vindhraða upp á 18-23 metra á sekúndu víða. Gular viðvaranir eru víða vegna hvassviðris en einnig eru viðvaranir vegna skriðuhættu á norðvesturhluta landsins og vegna mikillar ölduhæðar nærri ströndinni sunnan og vestantil.Samkvæmt veðurspá Veðurstofu Íslands er von á rigningu og skúrum og hita á bilinu 6-12 stig. Úrkomulítið verður á norðaustanverðu landinu.Þessa stundina eru gular viðvaranir vegna veðurs á Ströndum og Norðurlandi vestra og á Norðurlandi eystra. Þegar líður á daginn nær viðvörunin til fleiri landshluta og frá 18-21 eru gular viðvaranir vegna suðvestan hvassviðris á öllu landinu.Hægt er að fylgjast með viðvörunum á vef Veðurstofu Íslands.Í fyrramálið er spáð suðvestanátt upp á 10-18 metra á sekúndu og að síðan lægi með degi
Viðvaranir vegna hvassviðris um landið allt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd