Að minnsta kosti 1.200 voru handtekin í gær og í nótt í mótmælum stúdenta víða um Frakkland í gær. Stjórnvöld segja stigmögnun hafa orðið í mótmælunum í gær og þau orðið ofbeldisfull. Í frétt BBC segir að talið sé að 550 þúsund manns hafi tekið þátt. Sébastien Lecornu forsætisráðherra sagði að 150 lögreglumenn hefðu slasast í óeirðunum.