Auðlindir heimsins taka á sig ýmsar myndir. Sum ríki hafa byggt auð sinn á olíu sem sótt er djúpt úr jörðu. Önnur reiða sig á gjöful fiskimið, frjósamt land eða ferðamenn sem koma í leit að sól og ævintýrum. Slíkar atvinnugreinar hafa oft vaxið og þróast í áratugi og byggja jafnvel á aldagömlum hefðum.En stundum þarf hvorki að leita að olíu né sækja verðmæti úr sjó. Stundum nægja tveir bókstafir og dálítil heppni. Það varð raunin með Angvilla, sem er lítil eyja og breskt yfirráðasvæði í Karíbahafi, austur af Púertó Ríkó og rétt norðan við eyjuna Sankti Martin. Þar búa um 16 þúsund manns, svipaður fjöldi og í Mosfellsbæ.Þegar Angvilla fékk landslénið sitt á veraldarvefnum fékk það endinguna punktur ai. Lengi vel voru þetta einfaldlega tveir bókstafir sem vísuðu til nafns eyjunnar. Síðan var