Fjölda órangútanapa hefur verið bjargað á síðustu vikum frá miklum skógareldum sem geisa í Indónesíu.Talið er að rúmlega 100 þúsund apar lifi villtir í Indónesíu.EPA / MADE NAGIMengun af völdum eldanna hefur dreifst víða um Suðaustur-Asíu, valdið slæmum viðbrögðum í öndunarfærum bæði manna og dýra og takmarkað útiveru íbúa verulega í Indónesíu, Malasíu, Singapúr og Austur-Tímor.Í Indónesíu keppast dýraverndunarsamtök við að bjarga villtum dýrum frá eldunum, þar á meðal órangútanöpum sem eru tegund í útrýmingarhættu. Talið er að rétt tæpum hundrað öpum hafi verið bjargað frá eldunum á undanförnum vikum.