JD Vance kennir innflytjendum um óeirðir í Frakklandi

JD Vance varaforseti Bandaríkjanna telur innflytjendur í Frakklandi eiga sök á ofbeldi í mótmælaöldunni sem riðið hefur yfir franskar borgir. Þetta segir Vance í nýlegri færslu á samfélagsmiðlinum X.Hann segir frjálslynda Vesturlandabúa hafa flutt þriðja heiminn inn til Frakklands og annarra landa í nafni fjölbreytni og mannúðar. Hins vegar hafi þau hundsað grundvallarspurningar um aðlögun og samrýmanleika.„Þeim var sagt að það myndi leiða til þessa og þau hlustuðu ekki,“ segir Vance. „Ég bið þess að Frakkland, fallegt land dásamlegs fólks, stöðvi þessa sturlun áður en fleiri kennileiti þess brenna.“Vance er talinn líklegur til að bjóða sig fram til forseta í næstu forsetakosningum árið tvö þúsund tuttugu og átta. Hann nýtti tækifærið til að spyrða ástandið í Frakklandi við stefnumál demók
JD Vance kennir innflytjendum um óeirðir í Frakklandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd