Í gegnum tíðina hefur samkeppnisrígurinn á milli fyrirtækjanna Vífilfells, sem í dag heitir CCEP, og Ölgerðarinnar tekið á sig ýmsar spaugilegar myndir.Spurningin um þennan mikla ríg hefur komist óbeint í kastljósið á síðustu dögum eftir að Samkeppniseftirlitið réðst í húsleit hjá íslenska Pepsífyrirtækinu Ölgerðinni vegna meintrar misnotkunar fyrirtækisins á markaðsráðandi stöðu sinni á Íslandi.Hvernig komst Ölgerðin í þessa markaðsráðandi stöðu á Íslandi? Samkvæmt áliti Samkepppniseftirlitsins um samruna Ölgerðarinnar og Gæðabaksturs og Kjarnavara frá því í september er Ölgerðin með 40 til 45 prósent markaðshlutdeild á drykkjavörumarkaði á Íslandi í dag.Fyrir 25 árum var Vífilfell í þessari sömu stöðu á Íslandi en ekki Ölgerðin. Vífilfell var risinn, stóri bróðir en Ölgerðin var litli k