Kona á þrítugsaldri sem var skotin í íþróttahöll í Suður-Stokkhólmi í gærkvöld er látin. Hún var flutt á sjúkrahús með alvarlega áverka í gærkvöldi og lést af sárum sínum í dag. Nafns konunnar hefur ekki verið getið en komið hefur fram að hún vann með ungu fólki í sveitarfélaginu.Tveir drengir undir átján ára aldri eru í haldi grunaðir um manndráp. Sænska ríkisútvarpið, SVT, hefur eftir lögreglu að drengirnir séu ekki búsettir í Stokkhólmi og virðast ekki hafa nein tengsl við fórnarlambið. Þeir hafa báðir neitað sök. LEIT STÓÐ YFIR Í MARGAR KLUKKUSTUNDIR Fjöldi manns var viðstaddur íþróttaleiki í nokkrum sölum íþróttahallarinnar, Kämpetorpshallarna, þegar skotunum var hleypt af. Árásarmennirnir komust undan áður en lögreglu bar að og leit stóð yfir í margar klukkustundir.Þá var talsverð