„Útkoman er virkilega vönduð og ég er mjög ánægður með plötuna. Það skiptir sköpum að fá hæfileikaríkt atvinnufólk í tónlist í lið með sér, það hefur svo margt til málanna að leggja og lögin stækka undantekningarlaust við það. Dásemdin við að gefa út plötu er ferðalagið sjálft,“ segir Jónas Björgvinsson um nýja breiðskífu sína, Lífsins bók.