Fögnuðu 100 ára afmæli Ísaksskóla: „Maður lærir að vera góður og kurteis“

Nemendur, foreldrar og kennarar fjölmenntu í Ísaksskóla í dag í tilefni 100 ára afmælis skólans. Veggir voru fagurlega skreyttir með listaverkum nemenda og var afmælisgestum boðið að ganga á milli stofa og skoða ljósmyndir og myndskeið frá ýmsum tímabilum.Ísak Jónsson stofnaði skólann árið 1926, sem hefur frá fyrstu tíð sérhæft sig í menntun nemenda á aldrinum fimm til níu ára. Skólinn er einkarekinn og því ekki bundinn við eitt skólahverfi og koma nemendur víðs vegar af höfuðborgarsvæðinu.Bræðurnir Sigurður Krummi og Gunnar Krummi Eggertssynir mættu galvaskir í afmælisfögnuðinn með afa sínum. Þeir sögðust ýmislegt hafa lært í skólanum, til dæmis að lesa og að vera góðir og kurteisir.Hundrað ár eru liðin frá stofnun Ísaksskóla og var afmælinu fagnað í dag. Nemendur segja skemmtilegt í skól
Fögnuðu 100 ára afmæli Ísaksskóla: „Maður lærir að vera góður og kurteis“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd