„Ég var nú eiginlega bara mjög hissa,“ segir Jón Gnarr, fyrrum þingmaður Viðreisnar, um ummæli Gríms Grímssonar, þingmanns Viðreisnar. Grímur sagði í vikulokunum í dag að þingnefnd um málefni barna með fjölþættar stuðningsþarfir, sem Jón fór fyrir, hefði ekki komið saman undanfarna mánuði.„Þessi nefnd var skipuð til eins árs formlega í júní 2025 þannig að starfstíma nefndarinnar lauk fyrir fimm mánuðum, sem ætti nú alveg að skýra af hverju nefndin hefur ekki verið að koma saman,“ segir Jón.„Það sem er líka sérstakt í þessu er að Grímur átti sjálfur sæti í nefndinni,“ segir Jón sem tekur fram að nefndin hafi verið stofnuð að hans frumkvæði í samstarfi við Ásthildi Lóu Þórsdóttir, þáverandi mennta- og barnamálaráðherra. Sjálfur hefur Jón áður sagt að málefni barna hafi verið honum ofarlega í