Rúm hálf milljón tók þátt í mótmælunum í Frakklandi í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu innanríkisráðuneytis Frakklands. Af þeim 550.000 sem mótmæltu tóku um 110.000 þátt í höfuðborg landsins, París. Lögregla handtók um 400 mótmælendur í dag.Mótmælin snúast að mestu um háan framfærslukostnað. Brotist var inn í verslanir í nokkrum borgum og fóru mótmælendur ránshendi um tískuvöruverslanir, bakarí og raftækjaverslanir. RÁÐHÚSIÐ Í LIMOGES Í LJÓSUM LOGUM Í borginni Limoges kveiktu mótmælendur í 143 ára gömlu ráðhúsi borgarinnar. Að sögn sjónarvotta er eldurinn mikill og vinna nú slökkviliðsmenn að því að ráða niðurlögum hans.Maurice Barate, héraðsstjóri í Limoges, segir að stór hluti byggingarinnar hafi þegar brunnið.„Þakið hefur hrunið niður á neðri hæðirnar, að vesturálmunni undanskilin