Ungir strákar í haldi vegna skotárásar í Svíþjóð

Tveir drengir undir 18 ára að aldri eru í haldi grunaðir um tilraun til manndráps eftir að ung kona var skotin í Stokkhólmi í gærkvöldi. Sænska ríkisútvarpið, SVT, hefur eftir lögreglu að drengirnir séu ekki búsettir í Stokkhólmi og virðist ekki hafa nein tengsl við fórnarlambið.Konan, sem er á þrítugsaldri, var skotin í Kämptetorp-höllinni í Älsvjö í Stokkhólmi um níu í gærkvöldi. Þá var húsið troðfullt af ungmennum þar sem verið var að keppa í bæði fótbolta og handbolta. Konan var flutt á sjúkrahús og er enn í lífshættu. TILEFNI ÁRÁSAR ÓLJÓST Talsverður viðbúnaður var við Kämptetorp-höllina eftir árásina í gær. Lögregla girti stórt svæði af og tók skýrslur af fjölda fólks.„Það er ekkert sem bendir til þess að viðkomandi hafi verið skotmark í árásinni. Við erum að kortleggja atburðarás
Ungir strákar í haldi vegna skotárásar í Svíþjóð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd