Danska lögreglan handtók í dag átta manns í tengslum við mótmæli víða um Kaupmannahöfn. Annars vegar hélt hægrisinnaða grasrótarhreyfingin „Danska þjóðin“ mótmæli þar sem farið var fram á fjöldabrottvísanir. Hins vegar héldu samtökin Mino Danmark, baráttusamtök fyrir innflytjendur, auk fleiri samtaka gagnmótmæli undir yfirskriftinni „Nei við endurflutningum - mótmæli gegn rasisma“. Stimpingar urðu milli fylkinga að mótmælunum loknum.