Karlmaður á fimmtugsaldri lést í slysinu á Gæsavatnaleið

Karlmaður á fimmtugsaldri var úrskurðaður látinn á vettvangi eftir alvarlegt slys á hálendinu norðan Vatnajökuls á Gæsavatnaleið í gærkvöldi. Slysið átti sér stað þegar tíu manna hópur ferðafólks var að losa fastan jeppa.Í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra segir að slysið hafi strax í upphafi verið metið sem alvarlegt og að viðbragðsaðilar hafi verið sendir á hæsta forgangi á vettvang.Björgunarsveitir fluttu samferðafólk mannsins til Akureyrar þar sem áfallateymi Rauða krossins veitti því áfallahjálp við komuna þangað í nótt.Slysið er til rannsóknar hjá rannsóknardeild Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra og hefur rannsóknarnefnd samgönguslysa verið upplýst um slysið.Lögregla segir að ekki verði veittar frekari upplýsingar um slysið að svo stöddu.
Karlmaður á fimmtugsaldri lést í slysinu á Gæsavatnaleið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd