Landtökufólk á Vesturbakkanum réðst á franskan bæjarstjóra

Ísraelskt landtökufólk á Vesturbakkanum réðst á franskan bæjarstjóra í þorpinu Taybeh í dag. Landtökufólk herjar reglulega á íbúa í þorpinu. Bernard Baudoux er bæjarstjóri Aulnoye-Aymeries í Norður-Frakklandi. Hann segir árásina skýrt dæmi um ofbeldi landtökufólks.„Ég held að það að landtökufólkið fái að haga sér svona sé merki um umburðarlyndi af hálfu ísraelskra yfirvalda,“ segir Baudoux. Hann var í heimsókn í Taybeh þegar ráðist var á hann.„Heimurinn verður að vita hvað er í gangi hérna. Þegar ég fer heim kemst ég aftur í öryggi. En fólkið sem þjáist mest er fólkið sem hér er.“Maxime Prévot, utanríkisráðherra Belgíu, hefur fordæmt árásina en belgískur aðalræðismaður var með í för.„Það gengur ekki lengur að ofbeldisfullu landtökufólki sé ekki refsað,“ skrifar Prévot á X.„Þetta ofbeldi ve
Landtökufólk á Vesturbakkanum réðst á franskan bæjarstjóra

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd