Kornbóndi á Suðurlandi segir að fjárhagslegt tjón vegna ágangs álfta á ökrunum geti numið tugum milljóna króna.Hann vill að fólk sem stundar kornrækt fái leyfi til að skjóta fuglinn sem er friðaður.„Þetta fer léttilega í tuga milljóna króna tap – bara af álftinni. Hún er að borða af okkur fóðrið fyrir svínin og það margfaldast svo rosalega kostnaður.“Þetta segir Auðunn Magni Björgvinsson, kornbóndi á Gunnarsholti á Hellu. Hann segir ágang álftarinnar hafa verið vandamál til margra ára en að undanfarið hafi það aukist til muna.Kornbóndi á Suðurlandi vill fá að skjóta álftir sem éta uppskeru af ökrum hans í stórum stíl. Hann segir friðun fuglsins rökleysu. ÞYRFTI AÐ SKJÓTA „100–200 Á DAG“ UM TÍMA Auðunn telur að mörg þúsund álftir haldi til í nágrenni bæjarins sem éti allt að 10–60 hektar