Telja eldsvoða með öllu ótengda

Aðstandendur Rio Tinto á Íslandi telja enga tengingu vera á milli tveggja eldsvoða í álverinu í Straumsvík. Þar kviknaði í sitt hvorum áltökubílnum með aðeins viku millibili. Slökkvilið var kallað til í báðum tilfellum.Áltökubílar eru notaðir til að flytja ál úr kerskála yfir í steypuskála.„Það er auðvitað alltaf áhyggjuefni og það er talsverð hætta sem skapast þegar það kemur upp eldur í tæki. En við teljum að þessi tilteknu tvö atvik séu algjörlega ótengd og að öllum líkindum af allt öðrum orsökum,“ segir Bjarni Már Gylfason, leiðtogi samskipta hjá Rio Tinto á Íslandi.Engin ástæða sé til að óttast um öryggi starfsmanna í álverinu.„Okkar fólk þekkir til hvernig á að bregðast við og okkar fyrsta forgangsmál er alltaf að tryggja þeirra öryggi. Það mun ekki breytast.“ ORSAKIR ELDSVOÐANNA T
Telja eldsvoða með öllu ótengda

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd