„Þó að við séum fljót að leggja mat á umhverfi okkar, þá þýðir það ekki að þetta sé yfirborðslegt og einhver léttúð. Þar að baki geta verið ofboðslega djúpar ástæður,“ segir Páll Jakob Líndal, doktor í umhverfissálfræði. Heimildin ræddi við hann um fegurðarskyn fólks gagnvart umhverfi og náttúru. Í september var vindorkuver við Vaðöldu opnað við hátíðlega athöfn þar sem Jóhann...