Fjölmennt útkall vegna slyss á Gæsavatnaleið

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í gærkvöld ásamt lögreglu og björgunarsveitum á Norðurlandi vegna tilkynningar um slys á hálendinu norðan Vatnajökuls, á Gæsavatnaleið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra.Ekki liggur fyrir hvers eðlis slysið var eða hve alvarlegt. Útkallið barst skömmu eftir klukkan 20:30 í gærkvöld.Aðgerðum er lokið og lögregla segir að nánari upplýsingar verði veittar síðar.„Viðbragðsaðilar voru ræstir út og fóru lögreglumenn, sjúkraflutningamenn ásamt björgunarsveitarfólki frá björgunarsveitunum Þingey, Stefáni í Mývatnssveit, Hjálparsveit skáta í Aðaldal, Dalbjörg og Súlum á Akureyri á vettvang. Þá var þyrla Landhelgisgæslunnar ræst út og aðstoðaði hún við verkefnið,“ segir í tilkynningunni.
Fjölmennt útkall vegna slyss á Gæsavatnaleið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd