Leó XIV páfi var útskrifaður af sjúkrahúsi í dag. Hann gekkst undir aðgerð vegna lungnakrabbameins á þriðjudag þar sem hluti annars lungans var fjarlægður. Hnúður fannst á lunga hans við reglubundna læknisskoðun nýlega.Aðgerðin var framkvæmd á Gemelli-spítalanum í Róm. Læknar hans segja að batinn hafi verið samkvæmt áætlun og rannsóknir sýni að hægt sé að útskrifa hann. Niðurstöður úr frekari rannsóknum ráði því hver næstu skref verða í læknismeðferð hans. Páfi hugði á ellefu daga ferð um Suður-Ameríku í nóvember en óvíst er hvort hún verði farin á tilsettum tíma.