Fregnir af andláti Tetra-kerfisins eru stórlega ýktar, segir sérfræðingur í talstöðvarkerfum og neyðarsamskiptum. Mikilvægt sé að fara ekki of geyst við að skipta út neyðarsambandskerfum, og ekki slökkva á Tetra fyrr en tryggt sé að annað kerfi geti tekið við að fullu.Neyðarsímtöl og fjarskipti hafa verið töluvert í umræðunni undanfarið eftir að í ljós komu alvarleg áhrif lokunar 2G og 3G kerfanna á neyðarhringingar, en fjölmörg dæmi eru þess að fólk í alvarlegri neyð hafi ekki getað hringt í Neyðarlínuna eftir að slökkt var á kerfunum.Sigurður Ingi Hauksson, fulltrúi Neyðarlínunnar hjá Korda, sem er sameinað félag Farice, Öryggisfjarskipta og tæknihluta Neyðarlínunnar, segir mikilvægt að læra af þessu áður en ráðist verður í að skipta út Tetra-fjarskiptakerfinu. „Það tekur mörg ár að plan